top of page

Hver er ég?

GLEÐI - ORKA - EINLÆGNI

Ég lærði markþjálfun árið 2020 hjá Profectus og er í dag viðurkenndur markþjálfi og meðlimur hjá International Coach Federation. Ég býð upp á markþjálfunartíma í gegnum fjarfundarbúnaðinn Zoom. Þar sem ég er sjálf utan af landi finnst mér gott að geta boðið fólki upp á þjónustu mína án þess að staðsetning hafi áhrif.

Ég er sveitastelpa frá Vestfjörðum, þangað fer ég reglulega til þess að njóta með fjölskyldu, dýrum og náttúrunni. Einnig er ég menntaður rafvirki og hef unnið sem slíkur í fjölda mörg ár. Ég er með BA gráðu í fjölmiðlafræði og meistaragráðu sem MPMari, eða Master of Project Management.  Hins vegar er mín aðal ástríða að fljúga á svifvæng og mitt stóra markmið er að verða heimsmeistari í þeirri íþrótt. 


Bakgrunnur minn er fjölbreyttur og ég hef alltaf verið óhrædd við að prófa nýja hluti og stíga út fyrir þægindarammann til þess að öðast frekari færni. Ég á einnig gott með að hlusta á fólk og sýna því hluttekningu. Allt frá því að ég var ung stúlka hafa ungir jafnt sem aldnir leitað til mín fyrir ráðleggingar og í spjall og hefur þetta ekki breyst með árunum. Ég tek öllum þeim sem vilja ræða við mig með opnum örmum. 


Með aðstoð markþjálfunar hef ég styrkt kraftinn innra með mér og framtíðarsýnin mín er enn skýrari en hún var áður. Mitt takmark er að kynna markþjálfun fyrir sem flestum og hjálpa þér til þess að verða besta útgáfan af sjálfum þér. 

Hlakka til að heyra frá þér!

J'on minni textiekkert hvítt.png
Hver er ég?: About Me
bottom of page